jæja ákvað að skella hérna inn pósti sem ég fékk sendan... veit
ekki alveg hver skrifaði þetta en ég hvet alla til að setja nafnið
sitt á síðuna sem er gefin upp þarna... ég fæ alveg bara gæsahúð
við að lesa þetta 
Laugardagurinn 2.desember
2006
Fimm ára stúlka og karlmaður um þrítugt létust í hörðum
árekstri
tveggja fólksbíla á Suðurlandsvegi í dag. Þrír komust
lífs
af en af þeim er einn, lítill drengur, alvarlega slasaður.
Bílarnir
voru að koma úr gagnstæðum áttum, og fór annar þeirra yfir á
öfugan
vegarhelming.
Hvað þarf að gerast til þess að stjórnvöld fari að
forgangsraða
rétt og tvöfalda Suðurlandsveginn og Vesturlandsveginn?
Að meðaltali látast eða örkumlast 5 manns á ári hverju á
Suðurlandsveginum
og álíka margir á Vesturlandsveginum. Skipta þessi mannslíf
stjórnvöld
virkilega ekki máli?
Þetta mál snertir okkur öll, því að öll okkar þekkjum við
einhvern
sem aka þessa tvo fjölförnu vegi reglulega eða þá að við
ökum
þá sjálf. Það er hræðilega sorglegt að hugsa til þess
að
þessi mannslíf fóru vegna þess að stjórnvöld voru ekki löngu
búin
að láta þessi verkefni í forgang.
Skipta 10 mannslíf á ári virkilega ekki meira máli en það að
tvöföldun
Suður- og Vesturlandsvegar er látin bíða á meðan önnur mál
eru
látin hafa forgang. Það hefur sýnt sig að tvöföldun
Reykjanesbrautar
hefur bjargað mörgum mannslífum þó svo að henni sé ekki alveg
lokið.
Það er
gert ráð fyrir þessu þjóðþrifamáli á núverandi
samgönguáætlun.
Er ekki nóg komið?
Ég ákvað að gera ekki ekki neitt og að mannslíf fólks á
Íslandi
skipta mig máli, tek ég því þátt í að skrifa undir að skora
á Alþingi að tryggja tvöföldun Suðurlandsvegar án tafar á
vefsíðunni:
http://www.sudurlandsvegur.is
Ég hvet þig líka til að gera ekki ekki neitt og leggja þitt af
mörkum
með að skrifa undir listann og senda þetta áfram á alla í
þinni
netfangaskrá.
Sýnum samstöðu, hjálpumst að og látum stjórnvöld taka mark á
okkur.
Hver undirskrift skiptir máli!